Velkomin hér;)

Hugarheimur Huldu

24.09.2007 22:56:49 / Hulda

24.september

Afmælisbarn dagsins er mín yndislega vinkona Eva Mjöll:D

  Hér á myndinni er afmælisbarnið með Kristínu Kötlu minni sem ég sakna mjög mikið en hún er núna í skiptinámi í Bandaríkjunum(ég hlakka svo til að fá hana og Ingu heim)

Til hamingju með daginn enn og aftur Eva mín, ég vona að þú hafir átt gott kvöld og hafir getað litið aðeins upp úr námsbókunum;)

Á föstudaginn verður Sprellmót Háskólans haldið, þetta er stærsti skemmtiviðburðurinn á skólaárinu og er komin smá tilhlökkun í hópin. Hér læt ég fylgja nokkrar myndir frá sprellmótinu í fyrra:

            Kristín Katla, Eva, ég og Gulli frekar vígaleg á Ráðhústorginu

Harpa, Helena og Gulli líka frekar vígaleg;)

    Helena mín stjórnaði fjöldasöng og stóð sig vel í því;)

Inga stjórnaði líka fjöldasöng og öskurkeppni;)

Heiðdís mín tók þátt í boðhlaupi og stóð sig af sjálfsögðu vel;)

Ég og Þóra rauðar og flottar;)

Jæja nú er bara að fara að redda sér galla fyrir þetta árið, ég get ekki sagt hvaða búningur varð fyrir valinu að þessu sinni þar sem það er leyndarmál fram að sprellmótsdag, ég mun bara birta myndir frá þessum degi næstu helgi.

Best að fara að koma sér í háttinn, bið að heilsa ykkur


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 23:12:36 / Hulda

Komin aftur;)

Jæja það er kannski komin tími til að vakna af sumardvalanum frá þessarri síðu, það er nú ekki seinna en vænna þar sem veturinn fer nú að heilsa okkur með tilheyrandi kulda og snjókomu.

það er nú búið að vera alveg nóg að gera hjá mér síðan ég kom hingað norður, allir dagar eru þéttskipaðir og allt er á fullu. Skóladagarnir eru frekar langir þetta árið þar sem við erum að fara í svo langt verknám og því þarf að troða öllu efninu á okkur á sem minnstum tíma.  Við byrjum yfirleitt í skólanum kl.8 og erum ansi oft til 4 eða 5 á daginn og þá á eftir að koma sér í lærdómsgírinn sem er oft mjög erfitt því maður er alveg andlaus eftir skóladaginn. Ég stefni bara á að vera dugleg að læra í verknáminu.

Ég byrja í verknámi 8.október of verð í 6 vikur í verknáminu. Ég byrja á því að fara suður og verð 2 vikur í verknámi á einhverri geðdeildinni fyrir sunnan og svo fer ég norður og verð 3 vikur á bæklunardeild á Akureyri. Ég verð nú bara að viðurkenna að ég er frekar spennt fyrir því að fara í verknámið á geðdeildinni, ég vona bara að það standist undir mínum væntingum. Við munum reyndar bara fylgjast með meðferðum og viðtölum á geðdeildinni enda erum við alls ekki tilbúin að fara að vinna eitthvað sjálfstætt á þeirri deild. Hluti af minni tilhlökkun er líka sá að ég mun verða fyrir sunnan hjá fjölskyldunni í 2 vikur sem er bara gott;)

Þó það sé mikið að gera hef ég nú gefið mér tíma til að kíkja aðeins út á lífið og einnig bauð ég mig aftur fram í stjórn Eirar sem er félag heilbrigðisdeildarinnar og mun ég því gegna ritarastörfum þar í vetur;)  Ég kíkti á Papaball um daginn og það má með sanni segja að Paparnir klikka sko ekki.  Um síðustu helgi var bekkjarpartý hjá okkur með 80´s þema þar sem við stelpurnar hittumst og klæddum okkur og máluðum eftir tísku þessa tímabils, það má með sanni segja að þetta kvöld var bara snilld:haha:  Við skemmtum okkur allar konunglega, þegar við vorum búnar að drekka í okkur smá kjark þá héldum við á Sjallann þar sem Páll Óskar hélt uppi fjörinu. Við vöktum frekar mikla athygli á Sjallanum og var ég t.d spurð að því hvort það hafi verið að gæsa mig, en sumir sáu bara ekkert athugavert við útlit okkar:$hmm  Þetta var sem sagt snilldarkvöld og ætlum við að halda partý aftur með einhverju skemmtilegu þema, hér læt ég fylgja með nokkrar myndir frá kvöldinu svo þið getið séð hvernig við litum út;)

Hér er hópmynd af gellunum<img src=" title="Hér er hópmynd af gellunum;)" width="475" height="418" />              Hér er ein hópmynd af okkur, frá vinstri ég, Eva Mjöll, Heiða, Helena og Heiðdís;)

Hér fyrir ofan eru Eva sem er í sérsaumuðum MC Hammer buxum og Heiða sem með okkur í bekk og einnig er hún frænka mín;)

Hér fyrir ofan er Viðar, Heiðdís og Helena, ég veit nú ekki alveg hvernig Viðari leist á okkur þetta kvöldið:lol:

Fleiri myndir getið þið skoðað í myndaalbúminu mínu, það er linkur á það hér til hliðar;)         Takk fyrir snilldarkvöld stelpur mínar:D

Að lokum vil ég óska elsku Elísu minni til hamingju með að vera komin á besta aldurinn, ég vona að þú hafir átt góða daga heima í sveitinni okkar, ég sendi þér stórt knús og kossa:P

Hér læt ég fylgja mynd af fallega afmælisbarninu með annan gullmolann sinn(ég fékk þessa mynd að láni hjá þér Elísa mín)

Ég bið að heilsa ykkur og lofa að nú mun ekki líða svona langt á milli færslanna;)

kv. Hulda


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 23:45:30 / Hulda

Ónefnd færsla

Jæja ætli það sé ekki best að skella inn hér smá færslu bara svona til að koma með smá update um dagana sem liðnir eru frá því ég skrifaði seinast (það er nú meira en mánuður frá síðustu færslu og ég skulda ykkur sem eruð svona dugleg að kíkja á síðuna eitt stykki bloggfærslu). 

Fyrst ber að nefna að ég kláraði prófin um mánaðarmótin maí/júní, var nú ansi lengi að fá út úr prófunum því sumir kennarar eru ekki mikið að drífa sig að fara yfir prófin.Einkunnirnar voru nú allt í lagi en ég hefði þó viljað fá aðeins betri útkomu úr prófunum, einkunnirnar voru eftirfarandi: 6.5 – 7.0 – 7.5 – 9.5. Þetta er kannski bara allt í lagi einkunnir en ég stefni bara á að standa mig aðeins betur næst. 

 Þann 1. júní kvaddi svo elskuleg frænka mín hún Anna þennan heim eftir erfiða en hetjulega baráttu við krabbamein, :cry:hennar er sárt saknað af okkur öllum, við berum öll sorg og söknuð í hjarta okkar en yljum okkur við góðar minningar. Anna frænka var ein af fallegri og betri sálum sem fyrirfinnast hér á jörð, minning hennar mun  alltaf lifa með okkur.

 Um miðjan júní fór ég svo vestur í Stykkishólm í eitt stykki caudal sprautu, það gekk bara vel, ég er alltaf að sjá betur og betur að Jósep læknir er bara snillingur á þessu sprautusviði, af þeim læknum sem ég hef þurft að fara til finnst métr Jósep skara fram úr. 

Svo í síðustu viku lagðist ég inn á Landspítalann og stóð dvöl mín þar yfir 3 daga. Ástæða innlagnarinnar er sú að ég þurfti að gangast undir aðgerð, það var gert við þindarslit sem hefur verið að plaga mig í þó nokkuð mörg ár. Aðgerðin var gerð í gegnum 5 göt, það var blásið miklu lofti í kviðarholið og hefur þetta loft valdið ansi slæmum verkjum í öxlum, hálsi, herðum og fleiri stöðum. Þessir verkir í öxlunum eru djöfullegir, ég hlakka ekkert smá til að allir þessir fylgikvillar aðgerðar verða farnir. Nú er ég með verki og djöfulsins ógleði alla daga.

Smá punktar um aðgerðina:

·        Má ekki borða vejulegan mat í 5 vikur, ég þarf að mauka matinn sem er ekki svo lystugt:$

·        Má ekki borða brauð sem inniheldur korn og ég þarf að skorpuskera allt brauð og skera það svo á smá bita eins og gert er fyrir litlu börnin

·        Má ekki drekka gos eða neinn drykk sem inniheldur gos

·        Má ekki borða ferskt grænmeti, verð að mauksjóða allt grænmetið

·        Má ekki fá mér opal eða eitthvað annað sem gæti hrokkið ofan í mig

·        Má ekki drekka áfengi og bjór í 5 vikur, það er ekki víst að ég geti drukkið bjór eða gos eftir þessa aðgerð, það kemur í ljós með tímanum.

·        Má ekki borða epli og appelsínur

·        Má ekki lyfta neinu þungu og bogra í þessar 5 vikur

·        Má ekki fara að vinna eða að fara í ræktina fyrr en eftir verslunarmannahelgi

·        Það eru svona 99% líkur á því að ég geti aldrei ælt aftur, úff égvona bara að ég sleppi við allar gubbupestir hér eftir. 

Svona lítur þetta út í grófum dráttum, ég get bara sagt að ég hlakka ekkert smá mikið til þegar þetta verður allt yfirstaðið. Þegar ég má borða venjulega ætla ég sko að fá mér steik og fleira góðgæti.Saumarnir eru farnir að taka svolítið í núna þannig að sárin eru farin að gróa, ég hlakka svo til að geta farið að sofa á maganum aftur. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni, ég bið bara að heilsa ykkur öllum og læt í lokin fylgja mynd sem ég tók á símann minn af einni máltíðinni sem ég  fékk á spítalanum, girnilegt ekki satt  :lol: hehehehehehehe

 


» 18 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 22:40:17 / Hulda

Halló;)

Bara láta vita af mér, búin að vera frekar busy þessa dagana. Er að fara í próf á morgun og svo aftur á fimmtudaginn, þið megið alveg senda mér góða strauma;)

Hafið það rosa gott

Bestu kveðjur héðan frá höfuðstað Norðurlands þar sem hægt er að fara á skíði í lok maí8)

kv. Hulda


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 15:03:23 / Hulda

Gleðilegt sumar;)

Kæru lesendur nær og fjær

GLEÐILEGT SUMAR8)

\"\"  \"\"  \"\"

Bestu kveðjur frá Akureyrinni þar sem sólin skín og fuglarnir syngja;)

kv. Hulda Dóra

 

 

 

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 15:22:32 / Hulda

Eyjaferðin

Ég hef mikið spáð í hvað ég eigi að gera við þessa síðu, hvort ég eigi að hætta þessu eða halda þessu bloggi á lífi og ég hef tekið þá ákvörðun að leyfa þessarri síðu að lifa og verða duglegri að henda einhverju hér inn;) Heimsóknirnar inn á síðuna kom mér oft á tíðum mjög á óvart, hér eru oft að koma yfir 100 manns á dag og oft á tíðum eru fáir sem kvitta, ég er nú frekar forvitin að vita hvaða fólk er að kíkja hér inn, það lítur út fyrir að fullt af fólki sem kemur hér inn þekki mig lítið eða jafnvel ekki neitt. það væri nú gaman að fá kvitt frá þeim sem kíkja hér inn svo ég viti nú hverjir nenni að kíkja hér inn, mig grunar reyndar að mamma kíki ansi oft inn á hverjum degi;)

Síðan ég skrifaði síðast hef ég nú brallað ýmislegt, hef auðvitað aðeins kíkt á menningarlífið á Akureyri og eitt stykki Sálarball, ég verð nú bara að segja að Sálin stóð sko fyrir sínu og meira til. Ég kláraði verknámstímabil mitt á Handlækningardeildinni og fékk mjög góða dóma eftir dvöl mína þar, ég stóðst sem sagt verknámið með glæsibrag:D

Um síðustu helgi fórum við familyan öll saman til Eyja í fermingu hjá Alexander okkar. Ég keyrði suður á föstudeginum, stoppaði í Reykjavík í 2 klst og svo hélt ferðalagið áfram. Næst var haldið til Þorlákshafnar og þar beið Herjólfur a.k.a gubbudallur okkar og ferjaði hann okkur til Eyja.

                               Herjólfur hristist frekar mikið á leiðinni til Eyja og var fólk byrjað að kasta upp eftir 5 mínútna sjóferð og þá voru aðeins 2klst og 40 mín eftir af sjóferðinni:S  Sem betur fer vorum við með nokkrar kojur þannig að ég lá bara út af alla leiðina. Leiðin heim var mér nú erfiðari, samt var engin öldugangur þá. Ég ætlaði að vera bara hetja og nota ekki kojuna og kom mér bara þægilega fyrir í sjónvarpssalnum og horfa á eitt stykki bíómynd. Ég náði nú bara að sjá nokkrar mínútur af myndinni, við skulum bara segja að það hafi átt sér stað mikil líkamshreinsun í þessarri ferð og ég rétt hafði það af að skríða í koju, ef ég þarf að taka Herjólf aftur þá verður sko bara lagst í kojunu áður en dallurinn fer af stað!!!!

Í eyjum gistum við á Hótel Þórshamar og fór mjög vel um okkur þar

Við komuna til Eyja var snæddur síðbúinn kvöldmatur

 

Morgunin eftir var haldið í fermingu hjá þessum glæsilega fermingardreng;)

´

Fyrsta altarisgangan hans, ekki fannst honum veitingarnar þar góðar:lol:hehe

Við Harpa og Alda héldum að við höfðum náð í bestu sætin uppi á svölunum með góða yfirsýn yfir allt en annað átti eftir að koma í ljós

 

Hér sjáum við af hverju þessi "góðu" sæti voru laus, sjónarhornið okkar var bakhlutinn á kórfélögunum:$

 

Halla Margrét fékk alveg nóg af þessu öllu saman, hún var ekkert voða sátt með að fá ekki bara að vera með brósa sínum þannig að hún lét sig bara hverfa fram

Og við fengum svaka flottar veitingar

Þessi var glöð að sjá brósann sinn

Alexander með mömmu sinni

Alexander með pabba sínum

 

 Flotta Fermingarkertið

Þessarri snúllu leist best á þessa köku

 

Og amma stóðst ekki mátið og gaf litlu sinni smá bita

 

Þessi litla snúlla fékk bara engar kökur

 

Og togaði bara í hárið á afa sínum

 

Þessum 2 fannst voða gaman:haha:

 

Við familyan fórum svo og tékkuðum á veitingahúsunum þarna í Eyjum og fengum mjög góðan mat á staðnum sem varð fyrir valinu hjá okkur, þessi staður verður sko aftur heimsóttur;)

 Svo var farið aftur í Herjólf og Eyjarnar kvaddar, þetta er alveg yndislegur staður og margt að skoða þarna

 Þetta var frábær helgi í alla staði og áttum við fjölskyldan góðan tíma saman, ég ætla að enda þetta á einni mynd af Alexender með afa sínum, og þakka mömmu og pabba a.k.a bestu foreldrar sem hægt er að hugsa sér, kærlega fyrir okkur öll. Takk öll sömul fyrir frábæra helgi!

Það eru fleiri myndir frá þessarri ferð á myndasíðunnu minni.

Gleðilega páska og verið dugleg að borða páskaeggin:D

 

 

 

 

 

 

 

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 00:28:04 / Hulda

Smá update!!!!!

vá hvað tíminn flýgur áfram, ég væri alveg til í að hafa fleiri klst. í sólarhringnum þessa dagana. Á morgunn verð ég búin með 3 vikur í verknámi mínu og á þá bara eina viku eftir, mér finnst bara verknámið hafa liðið alltof fljótt. Ég er í verknámi á Handlækningardeild á sjúkrahúsinu hér á Akureyri, hér á deildinni er mikið af fólki sem hefur farið í aðgerðir, fólk með þvagvandamál, fólk með kviðverki ofl. ofl.  Mér hefur boðist mörg námstækifæri hér á deildinni, ég er t.d búinn að setja upp æðaleggi hjá fólki, taka niður þvagleggi, sprauta fólk í æð, undir húð og í vöðva, taka blóðprufu, blöðruskanna, taka til lyf og blanda lyf ofl. ofl. ofl;) Ég er ekkert smá stolt af sjálfri mér að hafa tekist að setja upp æðalegg, því það er soldil kúnst og auðvel er að klúðra því, einnig er ég ánægð með það að það hefur ekkert liðið yfir mig í verknáminu því eins og margir vita þá hef ég í gegnum tíðina þolað illa blóð og það hefur steinliðið yfir mig 3x út af mínu eigin blóði.Það er sem sagt alveg nóg að gera og margt að meðtaka og ég tel mig bara vera vel á vegi stödd í þessu. Verknámið er alveg 100% vinna en samt er ætlast til að við séum að vinna hin ýmsu verkefni með þessu, t.d eitt hópverkefni og það er bara meiri háttar mál að hittast því hópurinn er aldrei allur saman á vöktum!! Eftir hvern dag í verknáminu er ég svo andlaus og þreytt og hef því litla orku á heimalærdóm er að byrjuð að fá smá áhyggjur yfir því að hafa lítið geta lært í verknáminu en ég hugga mig við það að það eru flestir í sömu sporum og ég.  Ég er sem sagt búin að læra mikið í verknáminu og er að mestu leyti sátt við verknámið.

Frá því að ég bloggaði eitthvað síðast hef ég nú ekki gert ýkja margt, ég fór auðvitað vestur í sprauturnar og hefðu þær mátt hafa mikið betri virkni, ég verð bara að fá aðra tegund af sprautum næst og vona það besta, bakið hefur verið að plaga miki þó nokkuð undanfarið en ég læt það sko ekki stoppa mig;)

Ég er búinn að fara á eitt stykki árshátíð hjá Háskólanum, maturinn var yfir heildina ágætur, kjötið reyndar bar af hitt var ekki jafn gott. Veislustjóri var Sigmar í kastljósinu og stóð hann sig mjög vel, skemmtiatriðið voru fín, þetta var bara allt fínt þar til Páll óskar fór að spila því þegar hann byrjaði að spila fylltist Sjallinn af ungum ósjálfráða börnum ekki nóg með það heldur hleyptu Sjallamenn alltof mikið af fólki inn. Mér leið eins og í síldartunna að vera þarna og svo fannst mér ég nú vera aðeins gömul þarna inni og því fannst mér ballið mjög misheppnað og mun ég hugsa mig 2 um áður en ég fer á ball Með Páli 'oskari því mér leið eins og einhverri eldgamalli manneskju þarna inni og ég nenni bara ekki svona stemmningu aftur:evil:

Annars er bara fínt af mér að frétta, mun blogga meira fljótlega, nenni ekki meiru núna því ég þarf að vakna snmma í vinnuna, bið að heils ykkur og góða nótt;)

Hér á eftir læt ég fylgja myndir af mér frá því opnir dagar voru haldnir í skólanum, þar var ég m.a að lækna bangsa:lol:hehe og leyfa börnum að hlusta á hjartað sitt og magann sinn og fansst börnunum þetta æðislegt, sérstaklega það að láta "sprauta" bangsann og setja plástur;)

 

kv. Hulda

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 23:49:41 / Hulda

Blogg hmmm..

Bara láta vita að ég er á lífi og kem með eitt stykki blogg á morgunn;)  það er bara búið að vera frekar mikið að gera hjá mér undanfarið og því hefur bloggið orðið útundan. Er núna að reyna að sofna, þarf að vakna snemma og mæta á morgunvakt.

Góða nótt, bið að heilsa ykkur....

Kv. Hulda

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 15:15:00 / Hulda

Á að sprauta honum;)

Síðan ég skrifaði síðast hef ég nú gert ýmislegt, ætla bara að blogga um það seinna og setja inn myndir með.

Akkúrat núna er ég að fara vestur á Stykkishólm þar sem ég mun fara í eitt stykki sprautumeðferð við þessum helv....... bakverkjum sem hafa verið að plaga mig ansi mikið undanfarið:(   Nú mega allir krossa fingur fyrir mig og vona að ekkert fari úrskeiðis í sprautunum og að sprauturnar muni gera eitthvað gagn;)

Ég mun henda inn einu stykki af bloggi þegar ég er búin að fara í þennan hrylling og láta vita hvernig gekk!

Hafið það rosa gott, ég bið að heilsa ykkur:D

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 23:43:51 / Hulda

Bloggtími;)

Jæja ætli það sé ekki best að koma með smá blogg fyrir mína dyggu lesendur, reyndar eru margir orðnir ansi lélegir í að kvitta en ég vil hrósa múttu, Ingibjörgu, Benna og Sigrúnu fyrir það að vera dugleg að kvitta;)  ég er reyndar ekki alveg að átta mig á fjöldanum sem kíkir á síðuna oft á tíðum.

Það er nú ekkert margt að frétta héðan og það skýrir kannski bloggleysið, reyndar á letin þar stóran þátt:$

Ég er nú búin að bralla ýmislegt síðan ég kom norður og má þar helst nefna:

Vísindaferð til Húsavíkur þar sem við heimsóttum Sjúkrahúsið og Reðursafnið. Á sjúkrahúsinu var mjög vel tekið á móti okkur, fengum rosa flottar veitingar og læknar og hjúkka sungu fyrir okkur að stakri snilld:D

                                 Glæsilegar veitingar biðu okkar eftir að við höfðum farið einn kynningarhring um sjúkrahúsið, nóg var af mat og áfengi;)

  Læknarnir og hjúkkan sem sungu svo fallega fyrir okkur

                               Komnar á Reðursafnið þar sem mikið var um limi:lol:hehe

   Þarna á veggnum er frétt úr sveitinni minni um hvalreka og skinnið á veggnum er úr hvalnum sem rak í sveitinni

  Já mikið var um alls konar drasl í krukkum

   Stelpurnar að skoða hina ýmsu limi

Húsavíkurferðin heppnaðist semsagt mjög vel. reðursafnið er reyndar safn sem nóg er að fara einu sinni á.

Ég fór um daginn á frumsýningu á leikritinu Svartur Köttur í boði Ingu og Góa, þau eru svo yndisleg að bjóða okkur í leikhús;)  Þetta leikrit er alveg brilliant að mínu mati, frekar svartur húmor þar á ferð.

Brjálæðislegt leikrit, fyndið og djarft! er það sem sagt er um leikritið og eru það orð að sönnu;)

Er líka búin að fara á hin ýmsu djömm, halda partý og eitt stykki frekar súrt eftirpartý sem ekki verður farið í nánar út i hér á þessari síðu.  Erum búnar að halda spilakvöld, hafa matarboð, buðum Axel og Ingu í slátur á bóndadeginum, vildum vera soldið þjóðlegar en lögðum þó ekki í ónýtan súran mat og svo buðum við Ingu og Kristínu Kötlu í pasta ala Hulda;) 

Og svo er náttúrulega fylgst grannt með handboltanum, er meira segja búin að koma anti sportistanum henni Kristínu Kötlu inn í handboltann og er hún manna æstust þegar við horfum saman á leikina.  Er mjög ánægð með tapið gegn Þjóðverjum því út af tapinu mætum við Dönum í 8 liða úrslitum í stað Spánverja, við eigum nú meiri möguleika gegn Dönum:D   Þeir sem eru að koma mér mest á óvart eru Logi og Markús Máni, ég vissi bara ekki að þeir hefðu þennan hæfileika i sér drengirnir, svo eru náttúrulega Guðjón Valur og Alexander frábærir og ekki skemmir útlitið fyrir þeim;)  Mér finnst markvarslan hafa batnað, allir eru að spila vel, reyndar finnst mér vonbrigði íslenska liðsins vera Ólafur Stefánsson, mér finnst hann spila langt undir getu eða kannski er hann bara ekkert betri en þetta:!:   Íslenska liðið er án efa með myndarlegasta liðið á mótinu eða það er allavega mat okkar stelpnanna.

Svo er ég náttúrulega búin að vera í skólanum, hann hefur reyndar byrjað heldur hægt að þessu sinni, álagið byrjar nú í febrúar.  Ég er búin að fara í 2 próf og fékk fínar einkunnir í báðum prófunum.  Vorum að æfa okkur í að sprauta um daginn, já ég Hulda Dóra sprautaði manneskju í fyrsta skiptið og gekk það bara vel allavega er Þóra enn á lífi:lol:  Svo vorum við að læra um þvagleggi sem mér finnst ekki eins spennandi, við æfðum okkur bara með dúkkur í þeim tíma. Er frekar kvíðinn fyrir því að þurfa að setja upp þvaglegg í fyrsta skiptið.

Er búin að fá að vita hvert ég fer í verknám, ég verð hér á Akureyri á lyfjadeild, ég sótti reyndar um að fá að fara annað en líkt og allir sem sóttu um að fara annað verð ég á FSA, það fékk engin af okkur að fara annað og er fólk nú misánægt með það, ég er reyndar alveg sátt að þessu sinni.

Næstu helgi er svo vísindaferð suður í borg óttans þar sem gist verður á Hóteli, farið að skoða Öldrunarheimili og Össur og svo út að borða á Iðnó. Við erum búin að vera frekar busy í stjórninni að skipuleggja ferðina og er komin smá tilhlökkun í mig fyrir ferðina. Ég mun að sjálfsögðu kíkja á "Hótel mömmu" og fá mömmumat og stjana aðeins við mömmu þar sem hún er að jafna sig eftir aðgerð.  Þið sem verðið á djamminu á föstudagskvöldið endilega verið í sambandi.

Jæja ég hef þetta ekki lengra að sinni, efast reyndar að margir hafi nennt að lesa þetta allt.

Bið að heilsa ykkur

ÁFRAM ÍSLAND


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 00:46:46 / Hulda

25 janúar

Í dag 25. janúar á elsku besta mamma mín afmæli, til hamingju með daginn mútta mín og vertu nú dugleg að láta þér batna eftir aðgerðina. Koss og knúsar til þín;)         Einnig á hann Friðjón "litli" bróðir hennar mömmu afmæli í dag og er kappinn fertugur og auðvitað sendi ég honum hamingju óskir með daginn:D

   Hér er blómarósin hún mamma mín með elsta barnabarninu sínu honum Alexander;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 21:53:37 / Hulda

Afmæli;)

HÚN Á AFMÆLI Í DAG

HÚN Á AFMÆLI Í DAG

HÚN Á AFMÆLI HÚN HALLA MARGRÉT

HÚN Á AFMÆLI Í DAG;)

Já í dag á litli gullmolinn minn og gleðigjafinn minn hún Halla Margrét afmæli, hún er orðin 3 ára skvísan mín(vá hvað tíminn er fljótur að líða);

Til hamingju með daginn litla snúllan mín;)

  Hér er snúllan mín í skírn hjá litlu systur sinni;)

  Hér er hún með stóra brósa sínum á jólunum;)

  Hér er hún með litlu systur sinni í fanginu á afa sínum;)

  Hér er hún tilbúin í jólapakkana;)

Bið að heilsa ykkur, kannski að ég fari að halda áfram með þetta blogg????


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 17:49:27 / Hulda

Og hvað á barnið að heita????

Ég var að koma úr skírn hjá litlu dúllunni hans stóra brósa míns og Öldu, litla dúllan þeirra hlaut nafnið Harpa Lind og er nafnið fengið frá móðursystrunum sem heita Harpa og Helena Lind.  Til hamingju allir saman með litlu dúlluna;)

  Flotta súkkulaðikakan sem við fengum í eftirrétt;)

  Foreldrar, guðforeldrar, stóra systir, séra Pálmi og auðvitað litla skírnarbarnið;)

  Fallega fjölskyldan, spariskórnir hans Alexanders fundust ekki og því voru bara strigaskórnir notaðir við sparifötin;)

   Systkini, foreldrar, guðforeldrar, afar og ömmur

   Mæðgurnar

  Sú litla svaf af sér alla veisluna;)

(fleiri myndir eru komnar í myndaalbúmið mitt á netinu, kíkið endilega þangað)

Jæja nú er bara að gera sig ready fyrir gamlárskvöldið, verðum öll hjá mömmu og pabba í mömmumat:D   Hafið það rosa gott í kvöld, farið varlega með flugeldadraslið og munið að flugeldar og áfengi eiga ekki saman.  Gangið hægt um gleðinnar dyr í kvöld og góða skemmtun.;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 17:04:52 / Hulda

Í kvöld jólin eru að koma, í kvöld jólin eru að koma;)

ÉG SENDI YKKUR ÖLLUM MÍNAR BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR, ÞAKKA SAMVERUSTUNDIRNAR Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA, MEGI NÝJA ÁRIÐ VERÐA YKKUR ÖLLUM GÆFURÍKT;)

Og munið bara að njóta samverunnar með fjölskyldunni og þeim sem ykkur þykir vænt um. Verið nú dugleg að borða góðan mat um jólin og gæða ykkur á jólakonfekti, það ætla ég allavega að gera, ræktin og hollustan getur bara tekið við á nýju ári;)  Hafið það rosa gott yfir hátíðirnar

Kær Jólakveðja

Hulda


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 03:04:18 / Hulda

Sorgleg saga!!!!

Hér er smá saga sem sem ég fékk senda vildi bara leyfa ykkur að lesa líka. Þessi saga ætti að fá fólk til að hugsa og hefur ákveðinn boðskap, hér kemur sagan:

Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar
sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.

Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði "Þetta á eftir
að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði".

Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég
vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir
jólin.

Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin,
hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir smá
tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt á
dúkku upp við brjóstið sitt.

Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur.
Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum
"amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan
svaraði "þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín" Svo
bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um.
Hún fór fljótlega.

Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og
spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. "Þetta er dúkkan sem
systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin.

Hún
var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.

Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til
hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig
sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún en
núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar
hún fer þangað". Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta.

"Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka
að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna
fyrir mig og gefið systur minni hana".

Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og
sagði "Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.

Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni" Svo sýndi
hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. "Ég vil líka að
mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei"

"Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi
segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni".

Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur. Ég
teygði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við
strákinn "en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að þú eigir
nógan pening?" Allt í lagi sagði strákurinn "ég vona að ég eigi nóg"

Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við
byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja
smá afgangur.


Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit
hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera
viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa systur
minni. Hann heyrði til mín"

"Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa mömmu,
en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa
rósina líka". Sko mamma elskar hvíta rós".

Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að
versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.


Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður keyrði
drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í. Litla
stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan varð að ákveða hvort
það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga konan myndi
ekki vakna úr dáinu.

Var þetta fjölskylda litla stráksins?


Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga
konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt
af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og óskað
sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.

Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla
stráknum og dúkkuna á brjóstinu.

Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin sem
þessi itli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann dag í dag,
erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá
honum.

 

 

 

Ég held að þessi saga hafi áhrif á nánast alla, munið bara að láta stressið ekki ná yfirhöndinni nú á síðasta degi jólagjafakaupanna, munið að mesta verðmætið er falið í okkur og öllum í kringum okkur. Farið varlega í umferðinni og munið að eftir einn ei aki neinn!


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Klukkan
Dagsetning
20. mars 2010
Leitarbox

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti